<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31



Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed


blogdrive

Thursday, May 12, 2005
Hvernig .....

... er Ísland orðin nú til dags?

Ég vissi að vísu að eyjan okkar er ekki lengur eins saklaus og margir vilja láta hafa, en sjaldan hef ég orðið vör við nokkuð. Jú það er meira um slagsmál og undirstarfssemi sem fjölmiðlarnir fá stundum veður af, og þá frétti ég af því.

Ég skrapp út í Nóatún áðan og þar var maður að betla pening. Eða á ég frekar að kalla hann róna? Því rónalegur var hann og hann lyktaði illa, bæði illa lyktaður og áfengisangi af honum. Hann gekk um nánast alla búðina til að betla pening af öllum en honum gekk víst illa. Engin furða samt. Mig spurði hann tvisvar um pening og reyndi ég fyrst að hunsa hann en þegar hann stóð ennþá upp við mig þá sagði ég nei til að hrista hann af mér. Seinna skipti gekk ég bara í burtu frá honum.

Hvernig verður þetta þá eftir nokkur ár? Verða þá fleiri fólk (eða rónar) að betla af okkur? Verður það algengara sjón að sjá fólk sofa úti? Ok ég spyr að þessu núna og margir telja mig kjána því þetta hefur viðgengist í nokkur ár, en málið er að ég hef voða lítið séð eymdina eins og hún gerist  verst. Jú ég hef séð róna á götum Reykjavíkur en þeir láta mann yfirleitt í friði og drepa tímann með því að kjafta við hvern annan, undir áhrifum eður ei. Stöku sinnum hef ég líka séð mann sofandi út á götu en ég held það hafi þá verið einn af eftirlegukindum djammsins, sem hefur ekki enn skilað sér heim.

Læt hér staðar numið.

Skrifaði Selma klukkan 22:20
Comments (1)

Friday, April 22, 2005
Fyndin grein í mogganum....

.... þar sem haft var eftir ummælum frænda míns.

Syndir til Bandaríkjanna sæki 1 milljón manns Operuvafra

Jón S. von Tetzchner, forstjóri norska hugbúnaðarfyrirtækisins Opera Software, lýsti því yfir á starfsmannafundi í vikunni að ef fjöldi niðurhala nýs netvafra, Opera 8, sem kom út á þriðjudag, næði 1 milljón á fyrstu fjórum dögunum, myndi hann synda frá Noregi til Bandaríkjanna og aðeins koma við á Íslandi til að drekka kakóbolla hjá móður sinni.

Fram kemur í tilkynningu frá Opera að viðbrögðin við nýja vafranum hafi verið afar góð og raunar mun meiri en búist var við og netþjónar fyrirtækisins hafi ekki haft við. Um tíma hafi verið 120 niðurhöl í einu á sekúndu. Samt hafi 600 þúsund aðilar sótt sér Opera 8 á fyrstu tveimur sólarhringunum og það hafi valdið æsingi Jóns.

Fram kemur að Opera hafi nú bætt við netþjónum og því eigi netverjar ekki að lenda í vandræðum vilji þeir sækja Opera 8.

„Ég veit ekki hvort hann gerir sér grein fyrir því hvað Atlantshafið er kalt í apríl," er haft eftir Anne Stavnes, starfmannastjóra Opera í tilkynningunni. „En þar sem ég hef séð Jón í rauðu sundbuxunum sínum áður er ég ekki viss um hvort er ógnvænlegra, að synda til Bandaríkjanna eða neyða fólk til að líta þá sjón."

Ég skellihló þegar ég las fréttina og ætla mér að downloada Opera 8 svo að Nonni frændi geti komið við á Íslandi og sníkt kakóbolla hjá okkur. En ég held ég verði að vera ósammála ummælum Anne Stavnes þar sem Nonni er myndarlegur maður og tæki sig örugglega vel út í sundskýlu, kannski bara ekki endilega þessari rauðu.


Hér er heimasíðan hans fyrir þá sem vilja kíkja .


Skrifaði Selma klukkan 18:59
Make a comment

Friday, February 25, 2005
Milli tveggja heima...

Mér finnst, eins og flestum, gott að fá aðeins að kúra í rúminu áður en ég þarf að vakna. Þá stilli ég stundum vekjaraklukkuna (eða símann) til að vekja mig tíu mínútum fyrr svo ég geti fengið að kúra þennan tíma.

Í morgun brá svo þannig við að ég slökkti óvart á snúsaranum á símanum mínum og þar sem mig langaði að fá að kúra í 5 mínútur til viðbótar þá ákvað ég, svefndrukkin, að stilla símann minn upp á nýtt. Af einhverjum ástæðum fór ég í skilaboðin, valdi mms, skrifaði "VAKNA!" og sendi á símanúmer sem var í símaskránni hjá mér. Um leið og ég hafði sent skilaboðin þá áttaði ég mig á mistökum mínum en gat engu breytt. Aumingja sú manneskja sem fékk þessi boð hjá mér og klukkan var ekki enn orðin hálfátta.

Skrifaði Selma klukkan 13:02
Comments (2)

Wednesday, February 23, 2005
Nohhhhh

Lítið á þetta!


Skrifaði Selma klukkan 17:25
Make a comment

Sunday, February 20, 2005
Konudagurinn og Bláa lónið

Ég fór í Bláa lónið í gær með Mása, Virgile og einhverri vinkonu hans. Við vorum alveg á síðustu stundu þar sem ég var ekki búin að pakka niður þegar Mási kom. Var sko nefnilega að spjalla við huggulegan Dana á msninu og var ekki alveg að tíma að slíta mig frá spjallinu. Svo var Virgile seinn fyrir svo við Mási þurftum að bíða eftir honum og þá fattaði ég að ég hafði gleylmt kortinu mínu heima, svo það var brunað til baka vestur á bæinn til að sækja kortið. En í Bláa Lónið fórum við.

Það var alveg yndislegt í Bláa lóninu. Ég hafði ekki farið þangað síðan í október og það var þá líka yndislegt. Eina sem ég var svekkt á var að Virgile fékk hærri afslátt en við Mási, en hann er skiptinemi við HÍ og þar er sérsamningur við Bláa lónið svo hann borgaði bara 600 krónur. Við Mási þurftum hins vegar að borga 900 krónur. En afsláttur er afsláttur og ekkert okkar þurfti að borga fullt verð svo við getum verið þakklát fyrir það.

Mér finnst alveg æðislegt að láta mig fljóta í vatni og ég tók upp á því að fljóta heillengi. Svo hafði ég tekið eftir þremur Ameríkönum og sá að einn þeirra var að kalla í áttina til mín. Ég gerði ráð fyrir að hann væri að kalla til einhvers sem væri bakvið mig. Hann er sko hávaxinn og mér fannst eins og hann horfði yfir mig en ekki á mig. En svo reyndist hann vera að kalla á mig og var á endanum að spyrja hvort ég talaði einhverja ensku svo ég fór til hans og sagði já auðvitað. Þá spurði hann mig hvernig ég færi að því að fljóta svo ég sýndi honum það. Það var reyndar hálf fyndið að sjá hann og vini hans tvo reyna að fljóta og mig langaði virkilega að kenna þeim og byrja á þeim sem hafði spurt mig. En mig skorti kjark til þess. Silly me.

Ef þið eruð að velta því fyrir mér af hverju ég komst að þeirri niðurstöðu að þessir menn væru amerískir, þá urðum við Virgile alveg sammála um það. Við erum viss um að þeir koma af vellinum. Annars vorum við Virgile og Mási að skoða karlmennina aðeins og það var bara gaman. Það voru nokkrir flottir á svæðinu og sérstaklega einn ameríkaninn *slúrp*

Jæja, svo var partý hjá Mása í gærkveldi. Það var fámennt og gott.

Í dag er Konudagurinn og óska ég öllum konum og stúlkum á landinu til hamingju með daginn.

Skrifaði Selma klukkan 13:08
Make a comment

Tuesday, February 15, 2005
Skrítin sjón

Ég var á heimleið eftir að hafa skutlað son minn í leikskólann í morgun. Þar sem ég keyri eftir Ægissíðunni þá tek ég eftir því að hópur fólks er upp á losunarstöðinni fyrir baðherbergisúrgang (hversu fínt er hægt að orða hlutina???) og vakti það forvitni mína því það var ennþá snemma morguns.

Keyrði ég þangað framhjá í forvitninni minni og bregður við þegar ég sé að fólkið fer að sprikla og hoppa upp í loftið. Skildi ég ekkert í þessu í fyrstu og var farin að halda það væru einhverjir klikkhausar á ferðinni þegar ég áttaði mig á því að fólkið var að gera upphitunaræfingar fyrir göngu eða skokk.

Já, svona gæti ég ímyndað mér hvernig hversdagslífið litið undarlega út fyrir fólk sem væri ekki vant þeirri menningu sem við lifum.

Skrifaði Selma klukkan 09:55
Comments (1)

Monday, February 14, 2005
14. febrúar.....

..... er ósköp venjulegur dagur í mínum augum þó margir kjósa að halda upp á hann sem Valentínusardaginn. Já Bandaríkjamenn mega alveg halda upp á hann fyrir mér en ég persónulega kýs að halda upp á konu- og bóndadaginn þegar ég fæ mér maka. Ég veit, reyni enn að halda í bjartsýninni að ég fái mér mann einhvern daginn.

Ég er búin að fá nokkrar Valentínusarkveðjur í dag og aðallega frá erlendum vinum. Það sýnir sig enn og aftur að ekki eru allir Íslendingar sem taka upp þennan leiðinda sið frá bandaríkjamönnunum. Samt man ég eftir því þegar ég var ung og í sambandi þá gerði ég mér dagamun þennan dag og gaf kærastanum gjöf og hann gaf mér líka gjöf á móti. Ég man helst eftir því að hann kom heim með adult-toy og það var í fyrsta sinn sem ég fékk einhverja reynslu af svoleiðis dótaríi. Einnig kom hann heim með bók um erótíska nudd og spólu með myndinni Titanic, sem er, eins og flestir vita, eitt rómantískasta mynd aldarinnar (en fæstir nenna þó sjaldnast að horfa á hana oftar en einu sinni).

Ég ætla líka að tileinka þessa bloggfærslu manni sem ég kynntist lítillega á Finnlandi sumarið 2002. Hann var einn af starfsmönnum æskulýðsmótsins og frekar flottur maður. Ég man helst eftir því þegar ég og Hulda fylgdumst með honum að velta sér á kajak út á vatninu en við vorum í viðbragðsstöðu ef ske kynni að hann þyrfti hjálp við að reisa kajaknum aftur við. Eitt sinn var hann frekar lengi á hvolfi og vorum við Hulda hættar að litast á blikuna þegar hann loksins bægslaðist upp á yfirborðið, með sprungna vör, en þá hafði hann fest sig undir kajaknum og þurfti hann að losa sig úr bátnum til að fá súrefni.

Þessi maður er núna látinn. Hann fannst á strönd í Ástralíu í síðustu viku og talið er að straumurinn hafi verið of sterkur og öldurnar tekið hann. Þrátt fyrir að fjöldi heyrnarlausra er þokkalega mikill á heimsmælikvarða þá er heimurinn samt svo lítill að ég hafði frétt lát hans í gegnum msn hjá breskum, finnskri og norskum kunningjum og vinum mínum, sem allir voru heyrnarlausir. Ég endaði á því að spyrja norskan vin minn um manninn og fékk þá sólarsöguna.

 

Tileinkað minningu Sami Salo
 

Skrifaði Selma klukkan 22:55
Comments (4)

Wednesday, January 19, 2005
Ný færsla á nýju ári

Heil og sæl.

Síðast þegar ég skrifaði þá voru jólin rétt ókomin. Nú er komið nýtt ár, jólin búin og áramótin líka. Ég hef líka farið til útlanda á nýju ári og er nú komin heim og er sest við skólabekk aftur. Í dag er reyndar þriðji dagurinn minn í skólanum.

Áður en ég skrifa meira þá vil ég óska ykkur gleðileg nýs árs og þökk fyrir það gamla. Það er alltaf ánægjulegt að skrifa blogg og vita af fólki út í heimi sem les svo bloggið mitt. Vonandi koma nýliðar í þennan hóp sem eiga svo eftir að hafa ánægju af skrifum mínum. Það þýðir líka að ég þarf að taka mig á og skrifa meira í bloggið mitt.

Smá yfirlit yfir utanlandsferðina mína. Ég nenni nefnilega ekki að skrifa alla ferðasöguna. Ég hef reyndar skrifað hana í word en ekki alla samt, og það sem er nú komið hefur tekið 5 blaðsíður á word-skjali. Það finnst mér reyndar mikið. Ég flaug til Danmerkur 4. janúar og ætlaði að taka næturrútu beint til Noregs en vegna seinkunar á fluginu þá missti ég af næturrútunni og gisti í Kaupmannahöfn. Lagði ég af stað í býtið næsta morgun með rútu og var komin til Oslóar um tvö um daginn eftir átta tíma keyrslu. Fór ég fyrst til Kæju frænku og byrjaði á því að sofa 14 tíma í einni lotu, svo þreytt var ég eftir ferðalagið og líka eftir of lítilla svefn undanfarna nætur. Ég gisti hjá henni í tvær nætur og svo hjá Nonna frænda í eina nótt og þá hjá Helge vini mínum í tvær nætur. Þá flaug ég aftur til Danmerkur sunnudaginn 9. janúar og hitti bekkinn minn í dönskunni og kennarann. Við fórum í Schæffergården og vorum þar út vikuna. Föstudaginn 14. janúar fór ég með lest til Sollu frænku til eyjunnar Mön og var hjá henni í tvær nætur. Ég flaug heim til Íslands sunnudagskvöldið og hafði þá um daginn komið við í heimavistarskóla frændsystkina minna og kíkti á herlegheitin. Bjarki frændi var líka í heimsókn hjá henni um helgina og hann fór einnig með í heimsókn og svo um kvöldið í skólann sinn.

Já þetta var ferðin mín í aðalatriðum en ég nenni ekki að fara út í smáatriðin. Það var mjög gaman í Danmörku og Noregi og ég kom heim hress og endurnærð.




Skrifaði Selma klukkan 10:49
Comments (1)

Friday, December 24, 2004
Gleðileg jól!

Nú eru jólin komin og bráðum kemur nýtt ár.

Ég er búin að vera að njóta lífsins frá því að prófum lauk og hefur tekist að snúa sólarhringnum aðeins við. Dagurinn hjá mér í dag var alls enginn undantekning þar á. Börnin voru hjá pabba þeirra og ég gat leyft mér þann munað að sofa út í dag. Svo kom Mási alveg á réttum tíma og vakti mig með kossi og hvað hann var í góðu skapi, en það er engin furða þar sem kallinn hans verður með honum og fjölskyldunni í kvöld. Skömmu seinna komu Hilmar og börnin til mín að ná í pakka og gat ég óskað börnunum gleðilegra jóla og kysst þau og knúsað. Þau verða nefnilega ekki hjá mér í kvöld.

Við verðum saman, gamla kjarnafjölskyldan, mamma og pabbi og við systurnar þrjár. Höfum meira að segja kött með okkur eins og í gamla daga og einn aukagest. Við fylgjum anda jólanna og höfum oft aukagesti á jólunum. Í þetta sinn verður Stefán frændi með okkur en hann er nýfluttur til Íslands frá Noregi og verður hann hér um tíma.

Ég læt þetta nægja í bili og óska öllum gleðilegra jóla og góðra farsældar á nýju ári. Hafið það gott yfir hátíðirnar!

Skrifaði Selma klukkan 14:14
Make a comment

Monday, December 06, 2004
Merkisdagur í dag....

því á þessum degi fyrir fimm árum og og korteri síðan eignaðist ég stærðarinnar dreng.

Já hann sonur minn, Ari Fannar, á fimm ára afmæli í dag og óska ég honum til hamingju með afmælið :) Ég keypti handa honum Boga blýant svo hann geti æft sig í að reikna í tölvunni minni. Það þýðir víst að ég þarf að lána honum tölvuna mína oftar en það er svolítið erfitt því ég er svo eigingjörn á tölvuna mína hehe. Áður en við prófuðum leikinn þá skoðuðum við myndaalbúmið með fyrstu myndunum hans og ég útskýrði fyrir honum að hann hafi fæðst í vatni. Fæddur í vatni????? spyr kúturinn með undrunarsvip og mín svör voru já og þessvegna elski hann að vera í heitum potti ;)

Annars var ég í prófi í siðfræði í morgun. Voða spennandi......
En það gekk vonandi nógu vel að ég hafi náð áfanganum og þurfi ekki að hugsa meira um þau mál. Þrjú próf eru eftir og þá er ég komin í jólafrí víííí!!!!!

Sigga Lára vinkona mín kemur bráðum heim frá Spáni í jólafrí og ég hlakka svo til að hitta hana. Það er bara verst að ég veit ekkert hvenær hún kemur heim. Sigga mín, ef þú lest þetta þá endilega skilaðu til mín hvenær þú kemur heim svo ég get farið að telja niður dagana þangað til, sakna þín svo !!!!!!!

Já, svo ég bæti við í afmælisdálkinn þá átti Ólafur frændi minn afmæli í dag. Hann er orðinn 26 ára gamall. Hann er í heimsókn frá Noregi og verður fram á sunnudag. Hann gisti hjá Stefáni bróður sínum sem er líka á landinu, en er reyndar fluttur hingað..... tímabundið. Hann getur víst ekki sleppt sumrinu í Noregi svo hann flytur aftur til Noregs í maí, eða það er allavega stefnan.

Allavega.... til hamingju með afmælið Ari Fannar og Óli!!!

Skrifaði Selma klukkan 17:35
Comments (2)

Next Page
Tenglar
Hrefna og Ari
Mási
Hjördís Anna
Sunna
Gína
Ragnheiður
Obba Sigga
Lísa Noregsfari
Gunnar
Karen
Kitta
Bloggari.is
Ástralíufarar
S. Margrét
Demantar
Liljuátak
Jóhann
Stefán
Elín
Bjarki
Linkar
MYNDIR
Kennó
Vestfirskar fréttir